Ég hef svo sannarlega haft í nógu að snúast undanfarna daga. Til marks um það hef ég ekki gefið mér tíma til að koma upp internettengingu hérna í nýju íbúðinni minni fyrr en í dag, 9 dögum eftir að ég flutti inn. Eins og venjulega þegar Jan Eric og internettengingar eiga í hlut gekk það ekki eftir og því sit ég nú í Öskju og reyni að skrifa eitthvað um þessa fyrstu daga í Reykjavík þetta haustið.
Búferlaflutningarnir gengu ekki áfallalaust fyrir sig. Ekki vildi betur til en svo að rúmri klukkustund fyrir áætlaða brottför frá Akureyri varð ljóst að ég kæmist ekki inn í íbúðina mína fyrr en daginn eftir. Ég ætla ekki að gera þjónustu Stúdentagarða við fólk af landsbyggðinni að pistilefni en neita því ekki að hún hafi haft ákveðin áhrif á þetta ferðalag.
Við móðir mín (sem keyrði með mér suður og aðstoðaði mig við flutningana) létum þetta ekki á okkur fá og héldum af stað með búslóðina mína á tengivagni nokkurn veginn á áætluðum tíma. Í stað þess að keyra alla leiðina til Reykjavíkur fengum við gistingu hjá frændfólki okkar í Reykholti í Borgarfirði. Sú heimsókn var að vísu mjög ánægjuleg, ég fékk m.a. uppskrift af fáránlega gómsætri Bounty-tertu sem húsmóðirin útbjó og komst að því í heitapottinum fyrir svefninn að það er hægt að sjá norðurljós í ágústmánuði. Það er eitthvað sem ég hafði hreinlega ekki hugmynd um.
Ég er afskaplega ánægður með nýju íbúðina mína. Hún er 29m2, með litlu baðherbergi sem inniheldur góða sturtu, með litlu vinnuherbergi/geymslu með innbyggðu skrifborði og nóg af geymsluhillum og stóru rými sem er eldhús, svefnherbergi og stofa.
Sturtan er prýðileg, skápaplássið nánast of mikið og hlutföllin á milli breiddar og lengdar stóra rýmisins afar heppilegt til innréttingar. Þá er ég með litlar svalir sem snúa í vestur þannig að maður getur séð sólarlagið yfir Skerjafirðinum, en útsýnið yfir fjörðinn er gott.
Eitt af því fyrsta sem ég gerði eftir að ég kom suður var að fara í uppáhalds búðina mína á höfuðborgarsvæðinu, Góða hirðinn, og gera kjarakaup. Ég keypti mér ljósan tauáklæðissófa, viðarstofuborð með glerplötum og tvo dökka baststóla til að setja við eldhúsborðið (ég sætti mig sem sagt ekki við kollana sem fylgdu húsnæðinu, hver notar annars kolla sem eldhússtóla?). Þetta kostaði allt saman litlar 11.000 krónur. Gaman er að geta þess að sófinn kostaði einungis 6.000 krónur en eftir að hafa tekið hann í gegn með heilli flösku af sófahreinsiefni (1,5 lítrar) er hann metinn á 200.000 krónur, eins og einhver gestur minn lét hafa eftir sér um daginn. Því miður þurfti mamma endilega að draga mig í IKEA til að kaupa einhver búsáhöld að skoða gluggatjöld. Ég þarf ekki að vera lengur en 10 mínútur inni í þessari búð áður en ég fæ sting í hnén, yfir mig leggst dúndrandi höfuðverkur, mér verður illt í maganum og allur lífsþróttur tekur að streyma frá manni þannig að manni langar helst til að hlaupa styttstu leið út og leggjast á gangstéttina fyrir framan. Kannist þið ekki við þetta?
Eini raunverulegi gallinn við íbúðina er eldunaraðstaðan. Hellurnar eru aðeins tvær og bakarofn er ekki til staðar. Þá eru hellurnar svo litlar og nálægt hvorri annari að ef maður setur pönnu á stærri helluna þarf potturinn á hinni hellunni nánast að standa ofan á tökkunum til að stilla hitann á hellunum. Þetta var mér visst áfall, en ég reyni nú bara að gera það besta úr þessu. Til að bæta mér upp ofnsleysið tók ég einfaldlega fjölskyldugasgrillið með mér og hef það úti á svölum. Þá keypti ég mér kínverskan sápustein; kringlótta, gráa steinhellu sem er ætluð til þess að setja á grill og elda pizzur á. Ég hefði auðvitað ekki getað lifað af heilan vetur án þess að geta bakað mér pizzur – og þykir það í raun bara spennandi að horfa fram á vetur þar sem maður prófar sig áfram við að eldbaka pizzur. Þrátt fyrir eldunaraðstöðuna og að það er stutt síðan ég flutti inn hef ég nú þegar haldið tvö matarboð. Andri kom til mín á sunnudaginn og við bökuðum okkur pizzu með nýju hellinni minni. Í sannleika sagt skaðbrenndum við stóran hluta af botninum á pizzunni með of miklum hita og of löngum bökunartíma þannig að hann varð kolsvartur og harður. En sá hluti sem var ætur var virkilega góður, þannig að ég get ekki annað en hlakkað mikið til þess þegar ég verð búinn að ná fullum tökum á þessum eldbökuðu pizzum.
Skólinn er kominn á fullt. Námskeiðin mín í haust eru erfðafræði, lífefnafræði, vistfræði og dýrafræði hryggdýra. Erfðafræði og lífefnafræði eru virkilega spennandi en vistfræðin og dýrafræðin ekki alveg mitt eftirlæti. Mér finnst afar gaman af því hversu margir MA-ingar af árgerðum ’88 og ’89 eru annað hvort að byrja í líffræði eða þeim fögum sem eru einnig hýst af Öskju. Í því ljósi var sérdeilis leiðinlegt að missa af nýliðakvöldinu um síðustu helgi, en þá var ég staddur á Egilsstöðum að dæma leik. Það hefur verið nóg að gera hjá mér fyrir KSÍ undanfarnar vikur og verður það væntanlega áfram út tímabilið, en það klárast síðustu helgina í september.
Ég hef tekið fram takkaskóna eftir langt hlé og spila nú fótbolta með strákum úr MA-útskriftarárgangnum á þriðjudagskvöldum. Það er gott að fá svona alvöru hreyfingu milli þess sem maður situr yfir bókum. Þá ákváðum við Logi og Villi að vera menningarlegir og keyptum okkur fjögurra sýninga kort í Borgarleikhúsið fyrir veturinn í hádeginu í dag. Maður hefur verið allt of lélegur við það að fara í leikhús undanfarin ár og það verður sko heldur betur bætt úr því í vetur.
Jæja, klukkan er að verða ellefu og Askjan er nánast orðin tóm. Ég ætla að lesa nokkrar blaðsíður í viðbót í Introduction to genetic analysis og labba síðan heim í Skerjagarð. Jamm.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
ég vona að ég geti komið einhverntímann í vetur í heimsókn í krúttlegu íbúðina þína og fengið pizzu! Ég yrði svo ánægð með það... Gott að heyra að allt sé gaman og gangi vel hjá þér... Hlakka til að sjá þig um helgina!
hahaha...Janni minn, þú ert náttúrlega meistari. Engum öðrum dytti í hug að baka pizzur á kínverskri steinhellu á gasgrilli úti á svölum.
Ég býð mér hér með í eldbakaða kínverska pizzu til þín fljótlega.
Þórunn
Sæll Jan Eric!
Ef það skyldi einhverntíman verða að það yrði of snjóþungt yfir hávetur þá er þér velkomið að nýta þennan prýðis bakaraofn sem ég hef hérna hjá mér til að baka pizzu!
Þangað til næst.
þú ert náttúrulega með flottustu svalirnar í borginni, með grill og kinastein og ísskáp á þeim, fyrsti ísskápurinn sem gæti þurft að hita til að koma í veg fyrir frostskemmdir. OG FOKKING IKEA þetta var ekki stofnað af svía heldur djöflinum, það eru t.d. egir gluggar svo maður geti gleymt sér því maður sér ekki dagsljósið og margt þar fram eftir götunum, svo þarf ég að koma í pizzu til þín og þú í wok pönnu til mín.
hehe - þið allavega komuð brunakerfinu ekki af stað, er það nokkuð? ekki eins og stelpur sem ég þekki sem voru að elda, einmitt pizzu, þarna á fjórðu hæðinni og settu allt í gang;)
þú ert þá í suðurgötu 121?
Mér heyrist á öllu að þetta sé mjög krúttleg íbúð. En mikið rosalega er svekkjandi að þú getir ekki bakað bananabrauð eða eitthvað álíka skemmtilegt.
Ég elska pizzur, þú mátt bjóða mér í svona eldbakaða pizzu einhvern tímann þegar ég kíkka í borgina.
Ég sakna allra MA-inga. Þeir eru eiginlega allir fyrir sunnan og ég er hálf einmana hér á Akureyri. Kannski ég beili bara á HA og skelli mér í dönsku í HÍ, fæ ég þá ekki bara að búa í geymslunni, undir skrifborðinu? Held ég hafi ekki efni á miklu meira en það. Nei djók í brók. En það væri gaman að vera í skóla með öllum gömlu menntskælingunum, því ég sakna þeirra alveg hrikalega.
Knusogkram
Ég gæti ekki án bakaraofns verið. Ef ég neyddist til að vera án hans þá myndi ég eflaust ráðast heim til einhvers sem á svoleiðis tæki og eigna mér hann í nokkrar klukkustundir á meðan ég bakaði pizzusnúðana, kanelsnúðana, skinkuhornin og kökurna sem ég bara get ekki verið án. Persónulega finnst mér miklu skemmtilegra að baka heldur en að elda.. en að elda er líka gaman.
Málið með IKEA er að maður neyðist til að ganga næstum alla leið í gegnum búðina. Held að það sé svona ein short cut. Maður verður bara brjálaður. En annars finnst mér mjög gaman að skoða mig um þar og ímynda mér hvernig ég myndi innrétta heimili mitt.
Til Dóru: Takk fyrir frábært gærkvöld, Dóra. Góður matur, gott bál, góður félagsskapur. Ég hlakka til að baka handa þér pizzu þegar þú verður komin heim frá Caracas.
Til Þórunnar: Já, velkomin til landsins. Ég þarf að bjóða þér í heimsókn við tækifæri og veiða uppúr þér allar ævintýrasögurnar frá Noregi.
Til Jóns Sindra: Ég væri reyndar alveg til í að taka einn bökunardag einhvern laugardaginn eða sunnudaginn, þar sem við gætum hittst nokkrir og bakað. Ég er með mátulega stóran frysti og gæti hitað mér upp skinkuhorn í örbylgjuofninum mínum. Svo verð ég að baka þessa Bounty-tertu, hún er fáránlega góð. Ég var reyndar búinn að ræða svona bökunardag við Loga og Villa einhvern tíman í sumar og þeir eru spenntir fyrir því. Spurning um að við kippum þér uppí.
Til Loga: Wok-panna hljómar glimrandi vel. Við tökum við þegar tóm gefst til.
Til Kolfinnu: Suðurgata 121 - íbúð 221. Nei, en það tókst einhverjum nágranna mínum að koma brunakerfinu af stað um daginn. Ég spyr mig stundum að því til hvers þessi brunakerfi eru þegar enginn kippir sér upp við að þau fari í gang. Minnir mig dálítið á söguna um úlfinn og smalardrenginn, nema þá að ég held að fólk sé ekki að koma kerfinu í gang að ásettu ráði.
Til Heiðu: Haha, þú ert velkomin í heimsókn. Ég er með dýnu hérna fyrir fólk sem vill gista, það væri mögulega hægt að troða henni í geymsluna með skrifborðinu. En ég held að ef þú ætlir að flytja til Reykjavíkur myndirðu leita þér að annari íbúð, þessi er það lítil að hún rúmar réttsvo eina manneskju. Ég hef eldað og bakað ýmislegt í gegnum tíðina en bananabrauð er því miður ekki á þeim lista ;-) En það er jú alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt...
Til Katrínar: Já, þetta með bakaraofninn er slæmt. En maður verður bara að gera það besta úr því sem maður hefur. Ég bendi á að það er skemmtilegra að vera 2 eða 3 saman að baka heldur en að gera það einn og ég er viss um að ég geti boðið sjálfum mér eitthvert í heimsókn og tekið bökunardag. Þá horfi ég fram á mjög spennandi tíma við að prófa mig áfram með þennan stein. Í leiðbeiningum stendur að hann sé tilvalinn til að baka brauð og hver veit nema það standist skoðun.
Ég væri meira en til í góðan bökunardag við tækifæri! :-)
Post a Comment