Innan um nokkur listaverk sem ég málaði í leikskóla hangir hlutur uppi á vegg í herberginu mínu sem hefur heldur betur reynst mér vel undanfarin ár. Þetta er minnistaflan mín. Hvít tússtafla sem ég nota til að punkta hjá mér alla þá hluti sem ég þarf að koma í verk.
Fyrir framan hvern og einn hlut sem ég bókfæri á þessa töflu bý ég til reit sem ég merki við þegar viðkomandi mál er afgreitt. Ég stroka allt út af töflunni reglulega og skrifa niður upp á nýtt þá hluti sem ég á eftir að koma í verk enda óþolandi að hafa fullt af merktum reitum á töflunni sem ég þarf ekki að hugsa um lengur. Slíka uppfærslu gerði ég nú í kvöld. Hví ekki að deila með ykkur þeim atriðum sem nú prýða töfluna?
1) Ná í sketchamyndband. Útskýring: Fyrir um ári síðan hjálpaði ég stjórninni við að halda utan um þá sketcha sem borist höfðu fyrir sketchamyndband árshátíðar MA 2007. Þetta myndband prýddu margir af allra bestu sketchum sem ég hef á ævi minni séð, m.a. „Pietka”, „DJ Sverrir Páll” og „Kexið frá Frón – kemur við Sögu á hverjum degi”. Mig hefur alltaf langað til að eignast þetta myndband og þarf að muna eftir því að ná í það í MyMA-kompuna næst þegar ég skrepp norður.
2) Velja og panta stúdentsmyndir. Útskýring: Vegna annríkis síðastliðið sumar þurfti ég margsinnis að fresta því að fara í stúdentsmyndatöku. Svo fór að stúdentsmyndatakan mín fór fram 5. október síðastliðinn. Nú er ég búinn að fá myndirnar sendar frá ljósmyndaranum og þarf bara að velja þær myndir sem ég vil fá og panta þær.
3) Skipuleggja Kaldbaksferð. Útskýring: Ég hef víst samið við 1. Dóru og Bryndísi Þorsteins um að fara með þeim upp á Kaldbak (Um 1100 m hátt fjall við Grenivík) næst þegar færi til þess gefst svo við getum rennt okkur niður á Stiga-sleða. Sjálfur hef ég gert þetta þrisvar sinnum áður og þetta er alveg ógurlega gaman. Hér getið þið séð myndir úr einni slíkri ferð. Útsýnið er æðislegt og skemmtunin við að renna sér niður ólýsanleg. Nú þarf ég bara að hafa samband við þann sem sér um þessar ferðir og athuga hvort hægt sé að fara þarna milli jóla og nýárs.
4) Hringja í Ögmund. Útskýring: Það eru ótrúlegir hlutir að eiga sér stað á þessu landi okkar. Ég efast um að við gerum okkur öll grein fyrir því hvaða afleiðingar sú hugmyndafræði sem verið hefur við lýði í stjórn landsins síðustu 18 ár á eftir að hafa á lífskjör okkar sem þjóðar í nánustu framtíð. Hrun þessarar hugmyndafræði gefur okkur aftur á móti einstakt tækifæri á að snúa blaðinu við svo hægt sé að byggja upp réttlátt þjóðfélag með öflugt velferðarkerfi.
Mikill kraftur hefur einkennt starf okkar Ungra vinstri grænna undanfarið enda finnum við fyrir því að fólk er búið að fá nóg og hefur áhuga á að kynnast hugmyndum okkar um réttlátt samfélag. Skoðanakönnun sem gerð var fyrir Moggann fyrir viku síðan sýndi t.a.m. að 42,7% fólks á aldrinum 18-24 ára styðja Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Við höfum haldið marga fundi að undanförnu og eru þeir svo vel sóttir að 30 manna salur er tæpast nógu stór. Meðal þess sem við erum að gera þessa dagana er að móta stefnu í málefnum Evrópusambandsins og verður næsti fundur um það mál nk. miðvikudag. Ögmundur Jónasson alþingismaður ætlar á þeim fundi að útskýra fyrir okkur stefnu Vinstri grænna í þessum málum og svara fyrirspurnum. Ég þarf að hringja í hann á morgun til að staðfesta við hann fundarstað og fundartíma.
5) Fara á sjúkrahúsið. Útskýring: Þetta er eitthvað sem ég er löngu búinn að ákveða að gera en hef einhverra hluta vegna aldrei komið í verk. Næst þegar ég hef tíma til þess ætla ég að fara uppá sjúkrahús og óska eftir því að gerast líffæragjafi. Það felur í sér að ég gangi með skírteini í veskinu mínu til vitnis um það að þegar ég dey megi nota líffærin mín til að lækna sjúklinga sem þurfa á nýjum líffærum að halda.
Ég veit að fólk hefur mjög misjafna afstöðu til þess að gefa úr sér líffæri eftir að það er látið. Mér finnst ekkert sjálfsagðara og finndist frábært ef líffæri úr mér gæti gefið einhverjum nýja von.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
21 comments:
Ég held ég láti alla umræðu um pólitík eiga sig hér. Við getum það bara orðað það þannig að við erum hreint ekki sömu skoðunar, og er ekkert nema gott og blessað um það að segja.
Þú ákveður ekki að halda með öðru liði þótt liðið þitt tapi? Það má deila um tapið, þeas hvað það geri fyrir flokkinn en ég veit ekki. Þarf að hugsa þetta betur.
Þú hefur semsagt fengið Andra til að redda þér klósettpappír?
það er svipuð tafla í símanum mínum og án hennar kæmist ég ekki af, enda man ég mjög fátt upp á eigin spýtur þessa dagana... heilinn er orðinn yfirfullur:p
og ég væri meira en til í að fá sketchamyndbandið hjá þér þegar það er komið í hús, ég hélt einmitt að ég dæi úr hlátri á síðustu árshátíð þegar þetta var sýnt og væri meira en til í að sjá þetta aftur:)
Til Mettu: Mér mistókst sem sagt að ræða ekki stjórnmál á blogginu og þótt ég hyggist nú ekki skrifa annan pistil um það þá verð ég að svara þessari athugasemd.
Metta, þetta snýst ekki um að tapa eða vinna. Frjálshyggjan er búin að keyra þjóðarbúið í þrot og skuldsetja komandi kynslóðir. Í fréttum í útvarpinu í dag var talað um að skaðinn yrði 1.000.000.000.000 krónur (þúsund milljarðar). Þessi myndarlegi reikningur verður stílaður á Íslensku þjóðina, komandi kynslóðir.
Þú verður að gera þér grein fyrir því að ef þú styður ákveðna stjórnmálastefnu hvernig sem hún reynist ert þú um leið að staðfesta að þú metir stefnuna ekki af eigin verðleikum.
Til Kolfinnu: Ég skal láta þig vita þegar ég verð kominn með þetta myndband. Það verður samt kannski ekki fyrr en um jólin.
Ég hlakka svo til að fara í þessa kaldbaksferð Janni, vona að hún verði framkvæmanleg. Gott að vita að hún er á töflunni þinni, þá verður án efa unnið í þessu máli.
Mikið svakalega er ég ánægð með fylgi vinstri grænna, allt að gerast í rétta átt þarna á klakanum.
Ég tók nú bara svona til orða þegar ég talaði um að tapa eða vinna, það virðist vera algengt þessa dagana.
Margar mismunandi tölur hafa heyrst í þessum efnum og ég hreinlega veit ekki hvert maður á að snúa sér.
Jújú vissulega hefur frjálshyggjan farið illa með landið, en eins og öllum mörkuðum fylgir þá er eðlilegt að það séu einhverjar niðursveiflur á móti öllum uppganginum.
Ég held að ein setning lýsi þessu öllu á mjög góðan hátt: margur verður af aurum api!
Plús það er margt annað sem hefur áhrif á það hvernig er komið fyrir efnahagsástandinu hérna, ástandið út í heimi er fyrir margar sakir ekkert betra. Það má ekki gleyma að taka dómínó áhrifin með í spilin, margt smátt gerir eitt stórt.
Það má vel vera að maður sé kominn í hálfgerða þversögn við sjálfan sig ef maður styður stefnu sem virkar ekki, en ég hef trú á að það muni vera hægt að draga úr áfallinu og bæta ástandið, en það felst ekki í einhverjum skyndilausnum sem virðast spretta upp eins og gorkúlur þessa dagana.
Fyrir utan allt þetta ætla ég ekki að tala um ESB. Mig hreinlega skortir þekkinguna, og ég er ekki viss um að ég fái nógu yfirgripsmikla þekkingu til að vita um hvað málið raunverulega snýst, með því að lesa einhverja bæklinga sem koma frá stjórnmálaflokkunum og eru litaðir af skoðunum og áherslum þeirra.
Til Dóru: Ég er búinn að hlakka til þessarar Kaldbaksferðar okkar síðan við ákváðum að gera þetta. Uss, þetta verður svakalega gaman.
Til Mettu: Ég er sammála þér í því að töfralausnir eru ekki til. Við verðum að taka ákvarðanir með langtímahagsmuni í huga.
Það sem við þurfum á að halda í þessu landi í dag er velferðarstjórn sem tekur á efnahagsmálum með ábyrgum hætti og ræður sérfræðinga í efnahagsmálum til að stjórna stofnunum á borð við Seðlabankanum. Stjórn sem leggur áherslu á að fólki sé tryggður jafn aðgangur að menntun og heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Stjórn sem hættir að eyða peningum í vitleysu á borð við hernaðarleg útgjöld (sbr. 1500 milljónir á ári í Varnarmálastofnun auk þess að borga fyrir erlendar hersveitir sem koma hingað til æfinga á hverju ári) og beiti sér þess í stað fyrir velferð þjóðarinnar.
Já ég er nú alls ekki frá því að það mætti nú skipta út fólki í þessum blessaða flokki, þar á meðal Birni nokkrum Bjarnarsyni.
Myndiru ekki telja að nú væri tryggður jafn aðgangur að menntun og heilbrigðisþjónustu?
Auðvitað fylgir öllum ríkisstjórnum að þær taka ákvarðanir sem eru umdeildar í meira lagi og áherslumunurinn ætti að liggja í því.
Ég sé bara ekki Vinstri-græna fyrir mér í stjórn. Ímynd mín af þeim flokki, eflaust vel brengluð, er þannig að eina sem þau gera er að vera á móti því sem til umfjöllunar er, en koma ekki með nógu fullmótaðar lausnir sem raunhæft væri að nota. Ég held ég hafi einu sinni heyrt Steingrím J. segja að hann sé sammála, en taktu eftir að þetta er ekki marktæk könnun hjá mér, heldur einungis skot út í loftið eftir ímynd sem ég hef fengið af fjölmiðlum.
Voru það ekki Vinstri-grænir sem sátu hjá við afgreiðslu neyðarlagana sem sett voru um daginn?
Metta, Sjálfstæðisflokkurinn er að einkavæða bæði heilbrigðiskerfið okkar og menntakerfið okkar. Þótt það sé skammt á veg komið er stefna flokksins að einkavæða þessar grunnstoðir velferðarkerfisins.
Það er t.a.m. búið að einkavæða tannlæknaþjónustu. Hvort sem þú trúir því eða ekki fara þúsundir barna í þessu landi ekki til tannlæknis af þeirri einföldu ástæðu að foreldrar þeirra hafa ekki efni á því.
Einkavæðingu innan menntakerfisins vex auk þess ásmegin. Gjaldtaka í háskólanám er t.a.m. þegar farin að láta bera á sér.
Félagi minn sem er í kennaranámi hnakkreifst við konu sem hann er að læra með um einkavæðingu menntakerfisins um daginn. Hún sagðist vilja fá að borga skólagjöld fyrir börnin sín til að tryggja að þau fái góða kennara. Hann spurði á móti hvort það ætti þá að bitna á öðrum börnum að eiga foreldra sem hafa ekki efni á því. Eiga þau að fá enga eða lélega kennara? Það kaldhæðnislega við þetta er það að þessi sama kona missti vinnuna sína, húsið sitt og bílinn sinn í uppgjöri nýfrjálshyggjunnar nú um daginn. Erum við virkilega til í að leggja menntun barna okkar og rétt okkar á heilbrigðisþjónustu að veði?
Það er mjög sorglegt hversu vel hægrimönnum á Íslandi hefur tekist að ala á fordómum í garð Vinstri grænna. Það eru svo fjölmargir sem byggja andstöðu á VG á nákvæmlega sömu orðum og þú lýsir í athugasemd þinni. Þessi afstaða byggir bæði á fordómum, þekkingarleysi og ómálefnaleika. Þetta þarf ekki að vera þér að kenna, þér hefur bara verið talið trú um þetta og það að menn skuli leggjast svo lágt að gera það finnst mér afar dapurt.
Ef fólk myndi segja við mig að það vildi ekki styðja VG af því það væri á móti friði í heiminum eða á móti velferð Íslands gæti ég sætt mig við það. En mér sárnar alltaf að heyra af afstöðu sem byggð er á ranghugmyndum.
Það er algengt að heyra að VG komi ekki með lausnir á málum. Slík staðhæfing byggir á algjöru þekkingarleysi á stefnu og starfi VG.
Ég myndi glaður vilja kynna fyrir þér stefnu VG og ræða við þig á málefnalegan hátt um stjórnmál.
ég ætla að segja pass við stjórnmálaumræðuna herna..en ætla nú samt að segja hvað mer hlakka til að fara á sleðan milli jóla og nýárs. eins gott að það verði að þessu og snjórinn haldi sér. Gaman að sjá að þetta er komið á töfluna:)
Ég játa mig sigraða Jan Eric, þín vitneskja um stjórnmál er augljóslega mikið mun meiri heldur mín, og ég engan veginn umræðuhæf hvað við kemur þessu.
Ég kýs að vera ómálefnaleg og kjósa Sjálfstæðisflokkinn...
Katrín: Það er allt of mikið sem maður þarf að hugsa út í þessa dagana. Það versta er að ég hef eiginlega of mikinn tíma til að hugsa um það en samt svo lítinn. Það er erfitt að útskýra þetta. Ég þarf greinilega að koma mér upp svona töflu til að minna mig á að koma hlutunum í verk og halda utan um þetta allt saman.
Pff.. engar stjórnmálaskoðanir. Nice try.
Það er frekar lame að koma með annað komment svona strax á eftir hinu kommentinu, eins og mér hefði ekki dottið þetta fyrr í hug en ég hélt þó að þú myndir ekki leggjast það lágt að fara að hafa stjórnmálaumræðu svo persónulega að þú værir farinn að skjóta á greindarvísitölu hins aðilans.
Ég fæ ekki betur séð en að þú sért að því þar sem þú augljóslega heldur því fram að ég sé ekki bær til að mynda mér skoðanir sjálf með því að greina kjarnann frá hisminu, heldur að ég sé bara mötuð og taki við því og trúi sem mér er sagt.
Ég hélt þú værir meiri maður en það, að þrátt fyrir þínar persónulegar skoðanir, þá gætir þú alveg viðurkennt að annað fólk hefur aðrar skoðanir þótt þú sért ekki þeim sammála þeim og telur skoðanir þess eingöngu byggðar á ómálefnalegum rökum.
Það sem ég tel ómálefnalegt er þessi geðþóttaákvörðun þín.
Ég ákveð líka hér með að mér þyki þín umræða ómálefnaleg, og það er ákvörðun byggð eingöngu á mínum geðþótta.
Ég fagna Ísaksskóla og ég fagna HR. Ég fagna líka Versló. Bara til þess að fá fjölbreytni í skólaflóruna.
Þótt ég sé hægrisinnuð þá er ég nú ekki illgjörn manneskja Jan, og þú getur ALDREI haldið því fram að með því að styðja hægristefnu þá sé ég því samþykk að ef fólk eigi ekki næga peninga þá eigi það bara að éta það sem úti frýs og ekki eiga rétt á heilbrigðisþjónustu. Það að vera hægrimaður þýðir ekki að maður vilji einhverjum illt. Ég túlka það allavega þannig, en auðvitað eru mín rök ómálefnaleg, ég má ekki gleyma því...
Mig langar til þess að bæta smávegis við það sem fram hefur komið hér að ofan, þá hvað varðar einkavæðingu ríkisstofnanna á Íslandi.
Þó svo að það fái ekki mikinn hljómgrunn núna þá tel ég einkavæðingu bankanna hafa verið af hinu góða og er það eitthvað sem ég held að allir stjórnmálaflokkar fyrir utan VG taki undir. Þó svo að það fór sem fór þá gat þetta ekki gengið lengur eins og þetta var. Það sem hafði gerst var það að aðgangur fólks að lánum og fleiru fór eftir pólitískri skoðun. Það var engin samkeppni á bankamarkaði, allir bankarnir dóluðu áfram og voru sáttir við sitt. Loks þegar bankarnir eru einkavæddir þá kemur samkeppni á markaðinn og þau kjör sem þar bjóðast batna til muna (sbr. 4,5% húsnæðislán, sem voru mun betri kjör en Íbúðalánasjóður hafði boðið).
Þó svo að ég sé sjálfstæðismaður styð ég ekki Davíð Oddsson og tel að fallið hafi nær engöngu stafað af því að Seðlabankinn svaf á verðinum, efldi ekki gjaldeyrisforðann meðan bankakerfið stækkaði og því hafi bankarnir ekki haft neitt bakland til þess að fall á (eins og bankar annara landa höfðu).
En ef við ræðum einkavæðingu menntakerfis og heilbrigðiskerfis í þessu samhengi þá held ég að þetta lúti að sömu lögum. Ef við bara horfum til Bandaríkjana, þar sem báðir þessi hlutir hafa verið einkavæddir þá held ég að við getum séð ágæti þess. Þar eru bæði einkareknir og ríkisreknir skólar, sem verður til þess að þar eru einhverjir framsæknustu og langbestu háskólar sem völ er á í heiminum. Ekki þarf annað en að nefna nöfn eins og Yale, Harward og MIT. Væru þessir skólar þar sem þeir eru núna ef þeir væru reknir af ríkinu? Og þrátt fyrir þessa framúrskarandi skóla þá verður enginn útundan, það eru í boði ríkisreknir skólar þar sem öllum er frjálst að mæta og menntast. Þeir sem hafa efni á því geta borgað fyrir betri menntun, en hví á það ekki að vera hægt?
Sama er hægt að segja um sjúkrahús. Ég er sammála því að ekki eigi að einkavæða öll sjúkrahús, það þarf alltaf að vera aðgangur að heilsugæslu. En til þess að framþróunar og samkeppni gæti þá þurfa að vera einkarekin sjúkrahús. Afhverju eiga þeir sem vilja borga fyrir betri heilbrigðisþjónustu ekki að geta það? Afhverju á sá sem borgar 100 þúsund kr. á ári í skatt að njóta nákvæmlega sömu þjónustu og sá sem borgar 100 milljónir kr. á ári í skatt? Ath. ég er ekki að tala um það að þessi sem borgaði 100.000 kr. eigi ekki að njóta neinnar þjónustu.
Það eina sem einkavæðing sem þessi tryggir er það að menn sjá sig knúna til þess að leggja harðar að sér til þess að fá meira. Þetta er ekki græðgi heldur engöngu mettnaður. Það er varla hægt að réttlæta það að vinna þremur tímum meira á dag en nágraninn ef við fáum þrátt fyrir það nákvæmlega sömu þjónustu.
Ég veit að þessi hugmyndafræði nýtur ekki mikilla vinsælda miðað við núverandi ástand, en ég er þeirrar skoðunnar að sama hvaða hugmyndafræði notast er við þá munu alltaf koma lægðir. Eins og glögglega má sjá í dag, þá ríkir kreppa allstaðar í heiminum, sama hvaða hugmyndafræði er þar við líði.
Inngrip stjórnvalda með því að kaupa 85% hlut í glitni sem og vanhæfni Seðlabankanns gerði þessa kreppu mun verri hér á landi en annarsstaðar, en það þýðir ekki það að nýfrjálshyggjan sé dauð!
Verð að bæta smá við svo þetta sé ekki engöngu bara stjórnmálakomment. Verð að hrósa þér fyrir ágætis blogg, er staddur út á sjó eins og stendur og þetta er hin fínasta afþreying eftir erfiða vakt :)
Mig langar til að leggja nokkur stutt orð í belg hér, fyrst og fremst útaf því að nokkuð sem virðist vera í gangi hér minnir mig mikið á nokkuð sem ég upplifði þegar ég fór að taka þátt í pólitískri starfsemi af fullum krafti. Þá lenti ég uppá kant við vin minn sem var á öndverðri skoðun og ég, einmitt í gegnum blogg, og í dag tölumst við sjaldan við. Slíkt er ekki góð arfleið og þegar ég lít til baka er ég alveg jafn ósammála þessum gamla vini mínum um stjórnmál, en sé eftir því að hafa tekið við hann umræðu á bloggi þar sem að yfirlýsingar beggja fóru úr böndunum og leiddu að lokum til vinslita. Í pólitískri umræðu verður mörgum heitt í hamsi, skiljanlega, en við verðum alltaf að spyrja okkur hvort að á einhverjum tímapunkti er ekki bara betra að taka upp símann eða skrifa persónulegt bréf, settla málin og sætta okkur bara við að við erum ósammála. Það er jú í eðli stjórnmálamanna að vilja fá fólk á sitt band, en á vissum tímapunkti í samskiptum við vissa aðila, er allt í lagi að viðurkenna að það er bara vonlaus. Það þurfa heldur ekki allir að vera sammála.
Og svo örlítið um það sem var komið inná hér áðan um að VG kæmi ekki með lausnir; hér fyrir neðan er linkur á tillögur VG í efnahagsmálum í gegnum tíðina. Eins og sést er þetta ansi mikið, og hér er bara verið að ræða um efnahagsmál. Og þær tillögur sem þarna koma fram eru svo sannarlega raunhæfar, enda er ekki það sama að eitthvað sé raunhæft, og að einhverjum hugnist ekki þessar leiðir.
http://vg.is/frettir/eldri-frettir/nr/3680
It´s getting hot up in here, so put a water on them........:)
Til Mettu: Mér þykir mjög fyrir því að þú hafir tekið síðustu færslu minni persónulega. Það var aldrei meint þannig. Þetta hefur ekkert með greindavísitölu þína að gera og ég veit ekki af hverju ég ætti að hafa ástæðu til að efast um að hún sé há, mín kynni af þér gefa mér ekki ástæðu til annars en að halda að þú sért skörp stelpa.
Ég ber fullkomna virðingu fyrir rétti hverrar einustu manneskju til að hafa sínar eigin skoðanir á stjórnmálum, trúa á það sem það vill trúa, elska annað fólk hvort sem um gagnkynhneigð eða samkynhneigð sé að ræða og svo framvegis. Leggir þú þann skilning í fyrri færslu mína að svo sé ekki ert þú að skilja mín orð á annan hátt en þau eru meint.
Það er ákveðin ástæða fyrir því að ég ætlaði ekki að blogga um stjórnmál og er sú ástæða að koma vel í ljós einmitt núna. Ég held að það geti verið dálítið hættulegt að takast á um stjórnmál í gegnum bloggfærslur. Þegar fólk ræðir saman án þess að geta horft hvort framan í annað og án þess að heyra tóninn í rödd hvors annars er mjög auðvelt að leggja rangan skilning í þau orð sem "mælt" eru.
Ég vil biðja þig afsökunar á því að hafa ef til vill notað orðaval sem auðvelt er að misskilja og vona að þú trúir mér þegar ég segi að ég meinti ekkert slæmt í þinn garð með fyrri færslum mínum.
Til Bryndísar: Já, þessi sleðaferð verður eflaust frábær. Ég get samt ekki lofað því að kallinn geti farið með okkur milli jóla og nýárs, en hvenær sem það verður þá skal okkur takast að framkvæma þetta ;-)
Til Katrínar: Já, ég mæli með einhverju svona kerfi, hvernig sem maður útfærir það. Tafla er ef til vill ekki heppileg fyrir heimsborgara eins og þig, kannski lítil vasabók reynist betur. Áður en ég kom þessari töflu upp átti ég það til að þurfa að muna svo margt og svo gleymdi ég einhverju sem var mikilvægt. En þetta minniskerfi er tær snilld!
Til Björns Atla: Blessaður og sæll, gamli félagi. Það er orðið allt of langt síðan við hittumst síðast. Ég vissi ekki einu sinni að þú værir farinn á sjó.
Ég þakka þér fyrir þetta innlegg um stjórnmálin, ég hef rætt um einkavæðingu við ýmsa hægrisinnaða félaga mína sem hafa svipaða afstöðu og þú. Í ljósi þess sem farið hefur fram í þessum þræði held ég að ég láti mér nægja sú tillaga að við ættum að vera nokkuð sammála um að vera ósammála.
Þú mátt endilega heyra í mér ef þú verður einhvern tíman í Reykjavík á næstunni (eða fyrir norðan um jólin). Þá getum við tekið góðar umræður um stjórnmál og bara yfir höfuð það sem hefur á daga okkar drifið. Góða skemmtun úti á hafi!
Til Steinunnar: Já, það kemur mér lítið á óvart að þú sért í hópi fróðustu manna um tillögur VG í gegnum tíðina. En eins og áður hefur komið fram tel ég heppilegt að ræða þessi mál ekki frekar hér og eiga það frekar inni yfir góðum kaffibolla (eða kakóbolla).
Til Andra: Er hægt að segja "a water"?
hehehe.... spurðu Bustah Rhymes;)
ja ég og dóra förum bara þá og ræðum við hann ;) hehe
Muna: Fara að koma með nýja bloggfærslu!! Spurning um að bæta því á töfluna;)
sammála andra!
Post a Comment