Kæri lesandi! Búðu þig undir það að heimsmynd þín hrynji á næstu andartökum – hér eru nokkrir grasafræðifróðleiksmolar:
Vissir þú...
... að krækiber eru ekki ber, heldur steinaldin?
... að kirsuber, hrútaber og skollaber eru ekki ber, heldur steinaldin?
... að appelsínur eru ber?
... að bananar eru ber?
... að agúrkur eru ber?
... að fjögurra laufa smárar eru ber?
... að brennisóley myndar aldin?
... að valhneta er ekki hneta, heldur steinaldin?
Svona getur sannleikurinn leikið sem vindur um þá veiku spilaborg sem heimsmynd þín er og fellt hvert einasta spil. Eftir standa einmana rústir ásamt eftirsjá þinni í þeim tíma sem þú varðir til að byggja hina föllnu borg.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
11 comments:
Ég sit lömuð en spyr sjálfa mig; hver eru rökin? Hvernig færðu þig til þess að fella heimsmynd okkar hinna eins og ekkert sé auðveldara? Vægðarlaus ertu, Jan Eric.
Sjáumst annars eftir tvo daga!
Til Erlu: Ég lít svo á að þú sért annars vegar að spyrja mig að því hver rökin fyrir þeirri flokkunarfræði sem lýst er í færslunni séu og hins vegar hvers vegna ég kjósi að fella heimsmynd ykkar.
Það er flókið að útskýra t.a.m. af hverju bananar eru ber en ekki eitthvað annað, ég get gert gefið mér tíma til að fara ofan í saumana á því síðar. Lykilatriðið í þessu er sú staðreynd að við fórum að flokka ávexti í flokka á borð við ber og hnetur löngu áður en við fórum að rannsaka þroskunarfræðilegan uppruna og eiginleika þeirra. Þannig er það staðreynd að vatnsmelónur og bláber eru miklu skyldari fyrirbæri heldur en nokkurn tíman bláber og krækiber.
Ástæðan fyrir því að ég felli heimsmynd ykkar er afar einföld, ég vil upplýsa fólk um sannleikann en ekki hylma yfir hann.
Úff, ég er farinn að hlakka rosalega til föstudagskvöldsins.
Nú veit ég ekki hvort að það sé satt, en er það ekki rétt hjá mér að tómatar eru ekki grænmeti heldur ávextir? Kannski eru þeir líka ber eins og gúrkur?
Á stundum sem þessum vildi ég að ég væri á Íslandi. Skemmtið ykkur.
Þarna sýnir Katrín enn einu sinni fjölhæfni sína. Þykist vera sérfræðingur í málvísindum en veit betur en megnið af raunvísindamönnum um þeirra eigin fræði. Ef orðið laukrétt á við hér langar mig til að nota það. Tómatar eru ber.
Hefndin verður sæt... þú rústaðir minni heimsmynd... hér fer þín!
Vissir þú að stundum eru Halldór ber og svo er Kristján líka stundum ber.
Njóttu
Haha, mér þótti gaman að kommenta í svipuðum stíl og lokin á færslunni, "grínið" hefur e.t.v. ekki komist til skila...
ég spyr nú bara eins og fáfróður félagsfræðibrautarnemi, hver er munurinn á berjum, steinaldin og ávöxtum??
Ber og steinaldin eru hvort tveggja ávextir. Skilgreiningarnar á berjum og steinaldinum eru nokkuð ítarlegar. Þeir sem óska eftir því að nálgast þær eru vinsamlegast beðnir um að láta mig vita og ég get sent þeim umrædd gögn í tölvupósti.
fjögurra laufa smárar? ber?
Er þetta svona trikk þar sem allir punktarnir eru réttir nema einn sem er svona gargandi vitlaus og brjálaður. Eru þá venjulegir smárar vangefin ber? Þetta þykir mér furðulegt með eindæmum.
Mikið er endir færslunnar annars skáldlegur, verður að nota þetta í einhverja dramatíska sögu og senda hana undir leyninafni í smásagnakeppni Munins.
Neinei, þriggja laufa smárar eru vitanlega líka ber. Ég skal alveg taka undir með þér, þetta er svolítið skrítið.
Post a Comment