Gildi þeirra hluta sem mestu máli skipta í lífinu getum við seint metið til fulls fyrr en við höfum glatað þeim. Af og til verðum við fyrir lífsreynslu sem minnir okkur á þetta. Slíkan atburð upplifði ég síðastliðinn föstudag.
Ég hélt ásamt tveimur félögum mínum og kærustu annars þeirra áleiðis til Akureyrar í langþráð jólafrí. Þegar við vorum komin rétt norðurfyrir Grundartanga í Hvalfirði mættum við stórum Mitsubishi pallbíl. Ökumaður pallbílsins missti stjórn á honum og bíllinn snérist á hálum veginum.
Þetta tók rosalega fljótt af. Tveimur til þremur sekúndum eftir að ég áttaði mig á því að pallbíllinn var í vandræðum skullum við í hliðina á honum. Ég var á um 80 km hraða og pallbíllinn trúlega á 60-70 og kom úr gagnstæðri átt.
Fyrstu viðbrögð mín eftir að bíllinn hafði stöðvast var að spyrja hvort allir væru í lagi. Ég fékk einhverskonar svar frá öllum til staðfestingar um að allir væru með meðvitund. Því næst steig ég út úr bílnum og hringdi á neyðarlínuna. Vegfarendur sem komu að slysinu aðstoðuðu þá sem voru mest slasaðir. Ég áttaði mig fljótlega á því að vinstri höndin mín snéri allt öðruvísi en hún ætti að gera. Eftir að hafa gert viðvart hringdi ég í mömmu mína til að láta vita að ég hefði lent í bílslysi og það væri allt í lagi með mig, ég væri bara handleggsbrotinn. Þegar ég skellti á mömmu kom vinsamlegur vegfarandi að mér og bauð mér að sitja í bílnum sínum meðan við biðum eftir sjúkrabílum.
Biðin eftir sjúkrabílum virtist ógurlega löng. Í bílnum sem ég settist uppí voru þrjú börn á leikskólaaldri sem fóru að hágráta þegar ég settist inn. Ég reyndi að telja þeim trú um að þetta væri allt í lagi.
Við vorum flutt á sjúkrahúsið á Akranesi og ég og annar félaga minna síðar um kvöldið með sjúkrabíl á sjúkrahúsið í Fossvogi í Reykjavík. Ég handleggsbrotnaði, braut bein í úlnlið og fór úr úlnliðslið. Kærasta annars félaga minna fékk sennilega heilahristing og var öll marin. Annar félaga minna bringubeinsbrotnaði, fékk skurð á höfuð og innvortis blæðingar. Hinn mjaðmagrindarbrotnaði, fór úr mjaðmalið og handleggsbrotnaði. Sá verður rúmfastur í mánuð hið minnsta.
Ökumaður pallbílsins var ólétt kona sem var komin 8 mánuði á leið. Hún viðbeinsbrotnaði en sem betur fer er allt í lagi með barnið.
Fyrir það fyrsta er ótrúlegt hversu vel við sluppum miðað við það hversu harkalegur áreksturinn var. Svo minna atburðir sem þessir mann á það hversu ótrúlega heppinn maður er að vera við góða heilsu og eiga bæði góða fjölskyldu og góða vini að.
Nú er bara að reyna að jafna sig og njóta jólafrísins. Eins og sést á þessari mynd er bíllinn minn gjörónýtur – en það skiptir jú nákvæmlega ENGU máli.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Janni minn! Mikið er ég fegin að heyra að það er allt í lagi með ykkur. "Ég áttaði mig fljótlega á því að vinstri höndin mín snéri allt öðruvísi en hún ætti að gera." - ég fékk sting í magann þegar ég las þetta. Úff... gott að þetta fór ekki verr. Farðu vel með þig um jólin Janni :) Gleðileg jól!
Úff.. ég hlakka bara enn meira til að hitta ykkur og þakka fyrir að ekki fór verr. Það er ekki gaman að koma heim og heyra að vinir sínir hafi lent í hörðum árekstri. Ég hef verið að heyra svona undan og ofan af þessari sögu í allan dag eftir því sem ég hitti fleira fólk. Við vonandi sjáumst öll von bráðar.
Það var svo sannarlega óþæginlegt að heyra af slysinu en frábært að ekki fór verr.
Ég óska þér og þínum bara gleðileg jól og vonandi jafna allir sig á undraverðum tíma.
Ég heyrði reyndar líka að hamborgarahryggurinn sem ég gaf ykkur félögunum hefði farið vel ofan í ykkur, haha.
Ég þakka fyrir að ekki fór verr. það var virkilga hrollur í mér þegar Tinna sagði mér þetta á laugardeginum en ég hlakka mikið til að hitta ykkur elskan.
Það er í raun skammarlegt að yfirleitt (ég ætla ekki að alhæfa hér) þarf einhvern svona atburð til að minna mann á það hversu dýrmætt lífið er. Sem betur fer fór ekki verr, það skiptir öllu máli, ekki einhverjar eigur sem hægt er að skipta út og endurnýja, því maður endurnýjar ekki manneskjur.
Gleðileg jól :)
Mikið er ég fegin að ekki fór ver. Eigðu góðan bata Janni minn, við sjáumst hér fyrir sunnan vonandi.
Post a Comment