12.3.09

Ókeypis lúxus í kreppunni

Til er einn ótvíræður kostur þess að læra líffræði. Eftir hádegi á fimmtudögum eru verklegir tímar í dýrafræði hryggleysingja. Þar gefst fólki tækifæri til að skoða og teikna upp áhugaverð dýr af flokki hryggleysingja, ýmist lífs eða liðin, handleika þau og kryfja sundur og saman. Þegar fólk hefur fengið útrás fyrir krufningaþörfinni er því frjálst að setja dýrið sitt í plastpoka, taka það með sér heim og borða það.

Þetta kemur sér einstaklega vel á dögum eins og í dag. Ég mætti beint úr tölvusneiðmyndatöku uppi í Fossvogi í verklegan dýrafræði hryggleysingja inní Öskju. Verkefni dagsins var að kryfja humar. Eftir snarpan fyrirlestur um innyfli humra uppi við kennaraborðið settist hvert og eitt okkar við skurðarborðið og hóf að dytta að humrinum sínum. Við byrjuðum á því að klippa baklægu stoðgrindina frá og unnum okkur hægt og bítandi frá meltingarveginum og eistunum inn að heila dýrsins. Hvert líffæri var skorið upp til þess að kanna hvernig það liti út að innan. Þegar heilinn var kominn úr fórum við að þjarma að útlimum dýrsins og skoða hvernig jafnvægisskyn þess virkar. Meðan ég man, það er mjög athyglisvert.

Mér skilst að þessi tími hafi reynst skólanum dýr. Humrarnir sem voru keyptir fyrir okkur kostuðu samtals um 50 þúsund krónur. Enda engir afgangar hér á ferð heldur fyrsta flokks lúxushumrar. Skúli, félagi minn í líffræðinni, gaf mér humarhalann sinn gegn vilyrði um að ég byði honum í smjörsteikta humarhalda næsta laugardagskvöld. Ég hlakka mikið til að elda humarhalana, enda er um eðalmat að ræða. Síðar um kvöldið býð ég öllu fyrsta árinu á Barónsstíginn í bekkjarpartý. Þannig að þetta ætti að verða góð byrjun á skemmtilegu kvöldi.
Eins og brosmildur trillukarl, stoltur með afla dagsins, gekk ég heim á leið úr skólanum í góða veðrinu áðan – með plastpoka með tveimur humarhölum í hendinni.

8 comments:

Anonymous said...

öllu fyrsta árinu? Áttu við í Háskóla Íslands þá?

Anonymous said...

Nei, Almarr. Þetta gildir bara um þig og líffræðinema.

Anonymous said...

oh, hehe, það hefði verið svo gaman hefðiru boðið öllu fyrsta árinu í HÍ;) mjög svo skrautlegt líka;)

Anonymous said...

Já, Kolfinna, það er alveg rétt. Mér skilst að það kosti um 4 milljónir að leigja Egilshöllina yfir eina helgi þannig að ég hef því miður ekki alveg efni á því. Eigum við að leggja í púkk?

Anonymous said...

Mikið rosalega æðislega innilega eeelska ég humar. Mikið rosalega ætla ég líka að panta þannig í matinn þegar ég kem heim annað kvöld. Bon apetit!

Anonymous said...

Ég sé þig fyrir mér ganga með þetta heim í íslensku vorveðri sem er örlítið kalt en bara hressandi og sólin ekki sterk heldur bara birta sem fær þig til að píra augun örlítið en ekki óþægilega mikið.
Í dag ætlum ég og Eygló upp í Dómkirkjuna í Köln. Gaman.

Unknown said...

Mmmm, humar er eðalmatur!

Ég gæfi mikið fyrir að sjá allt fyrsta árið í HÍ í partý á Barónstíg, mjög svo skrautlegt held ég.

Kem á klakann eftir aðeins 2 daga:)

Anonymous said...

haha - já leggjum í púkk. við hljótum að hafa efni á því ef við skiptum þessu jafnt;)