Ef eitthvað er ljóst í þessum heimi þá er það sú staðreynd að allt geti gerst.
Það var einmitt það sem flaug í gegnum hugann á mér nú í kvöld þegar ég týndi bílnum mínum. Og já, þetta er sönn saga.
Aðdragandi þessa máls er sá að Ung vinstri græn héldu fund um gildi kvenréttis og náttúruverndar á tímum efnahagskreppu. Þessi fundur var haldinn á Kaffi hljómalind, sem er kaffihús rétt fyrir neðan miðjuna á Laugaveginum. Ég sótti Steinunni formann og keyrði niður á Laugaveg. Eins og vanarlega er engin bílastæði að fá við Laugaveginn og því beygði ég til vinstri inná hliðargötu þegar við vorum komin framhjá Kaffi hljómalind. Í kringum veginn voru bílastæði, en ekkert þeirra var laust. Því beygði ég aftur til vinstri af þessum vegi en fann ekkert bílastæði. Ég tók nokkrar beygjur í viðbót áður en ég fann bílastæði sem var í talsverði fjarlægð frá Laugaveginum. Við fórum út úr bílnum og gengum niður brekkuna uns við fundum Laugaveginn og fórum síðan á fundinn.
Þegar fundinum var lokið tjáði Steinunn mér að hún fengi far annars staðar og í léttu gríni sagði ég við hana að það ætti bara að skilja mig eftir í súpunni þar sem ég vissi ekki nákvæmlega hvar bíllinn væri. Hún brosti að því og sagði að ég þyrfti nú bara að ganga upp þar sem við beygðum af Laugaveginum og taka nokkrar beygjur. Hún sagðist halda að við hefðum lagt við Grettisgötu.
Ég fór sömu leið út af Laugaveginum og við þegar við leituðum að bílastæði. Að lokum fann ég Grettisgötu, en bíllinn var svo sannarlega ekki þar. Ég rölti nokkrar hliðargötur til viðbótar áður en ég sætti mig við þá staðreynd að bíllinn var týndur. Það var slydda og ég aðeins á peysunni svo ég ákvað að fara bara fótgangandi heim.
Þegar ég kom heim spurði Siggi Marteins mig hvort ég hefði ekki örugglega verið á fundi en ekki úti að skokka. Það eina sem ég gat sagt honum var að ég hefði týnt bílnum.
Á endanum samþykkti Siggi að fara með okkur Loga á rúntinn um þessar hliðargötur til að leita að bílnum. Nú fyrir stundu fannst bíllinn, án meiðsla en þó kaldur og votur eftir raunir kvöldsins.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
11 comments:
maður fyrirgefur fólki sem týnir bíllyklum... það er lítill hlutur sem á alveg að vera hægt að týna:) eeeeeeen að týna bíl??? eru þessir vinstri grænna fundir að fara svona með þig?:) ég legg til að þú takir leigubíl á næsta fund(5885522) og takir engar óþarfa áhættur kall! Miðbær Reykjavíkur að kveldi til getur verið svokallað skuggabæli!! Jan Eric Jessen er fallinn frá, týndi bílnum???? neeeeee...
Mikið er ég fegin að Siggi gat bjargað þér.
góður siggi segi ég nú bara. og já, flottur janni!;) þú átt skilið alveg eitt stórt klapp fyrir þetta afrek.
Ókei Jan Eric Jessen, nú er ég opinberlega með stærsta samviskubit í heimi. Só sorrí!
kv
Steinunn formaður
ótrúlegt...hehe ég á ekki orð. mundu það líka janni að bílinn á sér nafn, ertu nokkuð búinn að gleyma því?
Vel af sér vikið Janni minn segi ég nú bara.
hahahaha:) góður;)
hahaha!
þetta er fyndið
þú hefur samt örugglega ekki verið hlægjandi þegar þú labbaðir heim í slyddunni...
Þú hefur nú ekki þurft að labba mjög langt. Þú býrð á barónsstíg ekki satt? En að týna bílnum, er það nú ekki alveg óþarfi? Logi og Siggi.. mestu dúllur í heimi. Ekki laust við að maður sakni ykkar pínu pons.
hahahahahahahahahahahahahaha
LOL
of fyndið
Það sannast hér með aftur eins og oft áður, Siggi er nauðsynlegur til að koma manni til bjargar, ég hef persónulega reynslu af því hehe :D
Mikið er ég sjálf fegin að hafa bara týnt bíllyklunum en ekki bílnum, ég veit ekki hvernig ég hefði sagt foreldrum mínum það hehe...
Post a Comment